Innri vefur Kaupþings samstæðunnar 2008
Innri vefur Kaupþings

Árlega gefur Nielsen Norman Group út skýrslu um 10 bestu innri vefina sem er byggð á innsendum tillögum frá fyrirtækjum um allan heim. Eitt íslenskt fyrirtæki hefur náð þeim árangri að hljóta þessa viðurkenningu en það var Kaupþing sáluga.

Skýrslan er mikil að vöxtum og má efast um að nokkur manneskja hafi lesið hana frá upphafi til enda. Helsti kostur hennar er fjöldi skjáskota af innri vefjum sem annars eru öðrum lokaðir.

Helstu niðurstöður

Niðurstöðukaflinn er áhugaverður en ég ætla að gera grein fyrir helstu niðurstöðum skýrslunnar fyrir 2013.

  • Innri vefs teymi hafa tvöfaldast að stærð
  • 70% af vinningshöfum nota SharePoint en með umfangsmikilli aðlögun
  • Þrír af bestu innri vefjunum koma úr tryggingageiranum en almennt hafa fjármálafyrirtæki verið áberandi í þessum útnefningum í gegnum árin ásamt tæknifyrirtækjum
  • Bandaríkin hafa verið áberandi í hópi vinningshafa og koma þrír innri vefir úr þeirri átt þetta árið. (Það vekur athygli mína að innri vefir frá Ástralíu ná sjaldan inn á þennan lista en sterk hefð er fyrir þróun innri vefja hjá andfætlingum)
  • Að meðaltali tekur 27 mánuði að smíða vinningsvef sem er öllu styttra ferli en meðaltal síðustu 13 ára sem er 3,5 ár (játs! ég á erfitt með að botna þennan tíma)
  • Fyrirtækin hafa aldrei verið minni en meðal starfsmannafjöldi í hópi vinningshafa er 18.800 starfsmenn (Kaupþing hafði 3.200 starfsmenn þegar það vann til þessara verðlauna)

Ráðgjafar mikilvægir í verkefnunum

Að meðaltali vinna 27 starfsmenn að innri vefjum þessara fyrirtækja og hefur sá fjöldi farið vaxandi. Aukinn fjöldi sýnir aukna vigt innri vefja í rekstri fyrirtækjanna.

Ráðgjafar eru áberandi í teymunum en 8 af 10 nutu liðsinnis ráðgjafa. Margir þeirra komu að ráðgjöf varðandi innleiðingu og sérsmíði í kringum SharePoint en komu einnig að hönnun, þróun, notendarannsóknum, skipulagi, verkefnastjórnun og áætlanagerð.

Verktakar og óháðir ráðgjafar koma inn með sérþekkingu sem er oft ekki fyrir hendi í fyrirtækjunum en veitir þeim stuðning. Þetta er oft þekking og reynsla sem er ekki endilega nauðsynlegt að fjárfesta í með ráðningu starfsmanna.

Nauðsynlegt að fá fljótt inn efni

Í skýrslunni er lögð áhersla á mikilvægi þess að fá inn höfunda efnis fljótlega í ferlinu en það er oft sá þáttur sem bregst og seinkar verkefnunum. Einnig er mikilvægt að kalla eftir þörfum og sjónarmiðum hagsmunaaðila snemma í ferlinu. Efnið er það sem ræður einna mestu um hvernig upplifun notenda er á vefnum. Það þolir enginn illa lyktandi og óvandað efni.

Hvað einkennir innri vefina?

Nokkrar sterkar tilhneigingar hafa verið í gangi síðustu ár í þróun innri vefja og margar þeira halda áfram í ár. Meðal þeirra má nefna:

  • Megaleiðarkerfi
  • Videorásir
  • Efnismiklar upplýsingar í símaskrá
  • Persónusniðnar forsíður og einingar
  • Efni frá síðum fyrirtækjanna á Twitter, Facebook, LinkedIn og öðrum samfélagsvefjum
  • Starfsmenn geta síað út (filterað) efni sem hentar þeim

Að lokum má geta þess að aðeins einn innri vefur býður upp á mobile útgáfu og draga skýrsluhöfundar þá ályktun að mobilevæðing innri vefja hafi staðnað. Margir hafa mótmælt þessari ályktun og telja þetta ekki einkennandi þróun fyrir innri vefi í dag heldur þvert á móti.

Námskeið: Uppskrift að góðum innri vef

Endurmenntun býður upp á námskeið um innri vefi 4. og 6. mars nk. Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu þætti í uppbyggingu á innri vefjum í stofnunum og fyrirtækjum. Auk mín mun Guðný H. Danivalsdóttir, vefstjóri WOW Air, kenna. En við leiddum innra vefs verkefni Kaupþings á sínum tíma.

 

3 Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.