Gummi Sig
Gummi Sig hannar vefi – Ljósmyndari: Nýmynd

Það hefur lengi blundað í mér að kynna til sögunnar fólk sem skarar fram úr í íslenska vefbransanum. Það eru nefnilega andlit og persónur á bak við þessa vefi sem við höfum fyrir augunum á hverjum degi.

Þetta eru ekki eiginleg viðtöl heldur stuttar spurningar og svör um persónuna, daglegt amstur og vefmálin.

Fyrstur til að láta ljós sitt skína hér er Guðmundur Bjarni Sigurðsson eða Gummi Sig, listrænn stjórnandi og eigandi Kosmos og Kaos.

Allir sem eru eldri en tvævetur í vefbransanum þekkja Gumma Sig og verkin hans. Ég hef vitað af honum í mörg ár en ekki kynnst persónunni fyrr en á þessu ári. Frábær náungi með notalega nærveru.

Gumma Sig skaut upp á stjörnuhimininn árið 2009 í beinu framhaldi af bankahruni og persónulegu áfalli eftir að hafa verið sagt upp góðu starfi. Hann vann vel úr þessu og byrjaði á að hanna vef fyrir sjálfan sig gummisig.com.

Vefurinn náði mikilli athygli og fékk umfjöllun í Best Web Gallery sem átti eftir að skila sér í mikilli dreifingu og athygli í alþjóðlegum tímaritum á borð við Computer Arts og Smashing Magazine. Einnig rataði vefurinn í bækur um vefhönnun.

Á þessum tíma var Gummi Sig tiltölulega óþekktur á Íslandi en það breyttist svo sannarlega. En við vitum sem er að Íslendingar fá ekki viðurkenningu nema útlendingar fatti snilldina.

Tveimur árum síðar stofnar hann Kosmos og Kaos með Stjána (Kristjáni Gunnarssyni) og flestir í vefbransanum þekkja velgengnissöguna eftir það, m.a. í ríkulegri uppskeru á SVEF hátíð og hönnun Bláa lóns vefsins.

En hver er maðurinn? Ég spyr og Gummi Sig svarar.

gummisig.com
Vefurinn sem kom Gumma Sig á kortið

[bra_border_divider]

Spurt og svarað

Nafn: Guðmundur Bjarni Sigurðsson

Fjölskylduhagir: Giftur með 4 börn og einn hund

Menntun: Sveinspróf í grafískri miðlun (media grafiker) frá Köbenhavns Tekniske Skole

Hvað færðu þér í morgunmat? Ekkert, ég fasta milli 21:00 og 13:00

Uppáhaldsdrykkur? Kaffi eins og er, langar að koma mér aftur í teið, það var alveg uppáhalds 🙂

Af hverju Keflavík? Fæddur og uppalinn. Fluttum hingað aftur frá Danmörku eftir nám til að fá stuðning frá nærfjölskyldunni, sem við fengum. Svo hefur Keflavík upp á svo margt gott að bjóða bæði fyrir fjölskyldur og fyrirtæki

Ef ekki Ísland hvar værir þú að vinna þá? París eða San Francisco

Besta kvikmyndin? The Big Lebowsky

Uppáhaldstónlistin? Elektróník, allt með beljandi góðu bíti

Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir utan vinnunnar? Metabolic eða kítlileikur með krökkunum mínum

Hvernig slakarðu á? Hugleiðsla

Af hvaða verkefni ertu stoltastur? gummisig.com af því að hann kom mér á kortið. Hef samt gert svo margt æðislegt fyrir aðra og kann ekki við að taka eitt fram yfir annað, einhver gæti orðið öfundsjúkur eða fúll 🙂

Stærsti áhrifavaldur í vefmálum? Jón Karlsson

Besta vefbókin? Designing with web standards (Jeffrey Zeldman)

Ef þú mættir aðeins vera á einum samfélagsvef, hvern myndirðu velja? Facebook

Er responsive bara bóla? Nei

Ertu trúaður? Já, en líklega ekki eins og þú heldur

Besti vefur sem þú hefur hannað? Segi bara gummisig.com aftur af sömu ástæðu og hér að ofan

Mikilvægasta viðurkenningin sem þú hefur fengið? Líklega vefverðlaunin 2009

Er nauðsynlegt að kenna vefhönnun? Nei en það skemmir alls ekki. Ef þú hefur ekki áhuga, ástríðu og dug þá hjálpar ekkert nám þér að verða góð(ur) í þessu

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.