Verkfærakista vefstjórans...

Vefstjóri, rétt eins og iðnaðarmaðurinn, þarf á verkfærum að halda í daglegum störfum. Við sem vinnum við vefstjórn erum heppin að því leyti að fjárfesting í verkfærum sligar ekki reksturinn. Þau standa nefnilega okkur til boða gjarnan án endurgjalds. Við þurfum bara að sækja þau. Á námskeiðum sem ég hef staðið fyrir undanfarin ár hef ég tínt til alls kyns verkfæri...

Notendaprófanir eru besta ...

Á hverju ári þurfa flestir sem stýra vefsvæðum að leggja niður fyrir sér hve mikið á að fjárfesta í vefmálum. Vefstjórar í meðalstórum og stærri fyrirtækjum eru iðulega með fleiri en einn vef undir sinni stjórn, t.d. innranet og ytri vef. Til að geta unnið almennilega áætlanagerð þarf að liggja fyrir hvort eigi að fara í nýsmíði á vef, sinna eingöngu viðhaldi eða...

Hver á innranetið?

Innranetið er vandræðabarn innan flestra fyrirtækja, það er oftar en ekki illa skipulagt, lítt viðhaldið og hálf hornreka. Stjórnendur taka það gjarnan ekki nægilega alvarlega og þar með er virðing fyrir því meðal starfsmanna oft takmörkuð. Sá sem hefur umsjón með innranetinu er því oftar en ekki með verkefnið sem lítinn hluta af öðrum verkefnum, lítur á starfið sem...

Twitter og biðraðamenning ...

Twitter er að taka flugið á Íslandi og ekki bara meðal nördanna. Þessi samfélagsmiðill er þó fjarri því búinn að ná viðlíka stöðu og Facebook þar sem drjúgur hluti þjóðarinnar ver tíma sínum á degi hverjum. Þegar ég held námskeið í vefmálum á vegum Endurmenntunar þá spyr ég alltaf nemendur hvort þeir séu á Twitter. Það eru að jafnaði um 2-3 í 25 manna hópi sem...

Er leit ekki lengur nauðsy...

Vefurinn er ungur og frekar fáar hefðir hafa myndast í vefhönnun í samanburði við aðra miðla. Ein hefð er nánast að verða ófrávíkjanleg en það er staðsetning á merki eða logo fyrirtækis efst í vinstra horni á vef. Þar vita notendur að þeir geta alltaf komist í heimahöfn hvar sem þeir eru staddir á vefnum. Fáir vefir brjóta þessa reglu. Önnur hefð snýr að leiðarkerfi....

Gott fyrirtæki sem misskil...

Frábær vefur segir þér hver lykilverkefnin eru um leið og þú lítur á vefinn. Viðskiptavinir vilja ekki þurfa að hugsa. Þeir eru komnir til að leysa verkefni, mættir á vefinn þinn og hann verður að aðstoða þá við að leysa verkefnin, bæði fljótt og vel. Þolinmæði þeirra er afar takmörkuð. Vefur Nova.is er dæmi um víti til að varast. Samlíking við rúllustiga á...

Social Widgets powered by AB-WebLog.com.